29.06.2006 11:45:56 / sara

TIL Í KJÉLLINN..

sælt veri fólkið:) ég vildi bara láta ykkur vita að ég er á lífi..enn ég hef ekki bloggað í einhverja mánuði:)hehe.. en ég get einfaldlega bloggað fyrir ykkur eitthva á næstu dögum þar sem ég sist föst heima og get ekki labbað:/ í gær var ég nebbla að keppa á ásvöllum á móti aftureldingu og endaði það ekki betur með en að ég var að kálast í löppinni og ákvað að tjékka á henni og kæla smá þegar inn í búningsklefa var komið í hálfleik en viti menn þá var ristin á mér gjörsamlega 3föld og ég gat jú varla stigið í löppina útaf þrýstingi eða einhverju helvíti!!:/ og endaði þetta með því að æðislega fólkið sem stendur á bakvið okkur í 3fl. kvenna HAUKUM:D hélt á mér útí bíl og fór með mig uppá slysó..enn þar fór ég í rögentmyndatöku og eittva þannig síðan var mamma mín komin og við biðum eftir niðurstöðunum enn sem betur fer er ég EKKI brotin bara bólgin as hell!!:/ konan þarna sagði að þetta ætti að taka einhverjar 2vikur að jafna en það er ekki sjéns þar sem að ég er að fara til minneapolis eftir 15daga með fótboltanum og ég ætla sko að geta æft fram að því!! en meira um mig:) á seinustu dögum hefur dagur í lífi mínu verið svona.. vakna... vinna í prentmet.. æfingu eða keppa... sturtu/bað sofa EÐA vakna.. vinna í prentmet... vinna á subway.. sturta/bað sofa... jeii innihaldsmikið líf hér á ferð:D:Dhaha enn úff ég get varla beðið pæliði í þessu eftir 15daga verð ég stödd útí BANDARÍKJUNUM AKA. MINNEAPOLIS AKA. ÞAR SEM MALL OF AMERICA ER:D:D AÐ KEPPA Í FÓTBOLTA:):D:D vááá get ekki beðið og síðan kem ég heim aðeins að kíkja á fólkið á klakanum og skelli mér síðan með ástu út til englands 29.júlí:D:D vááá þetta verður GEÐVEIKT sumarfríí:D:D ENN ÞAR SEM AÐ ÞETTA ER ORÐIN FREKAR LANGT ÆTLA ÉG AÐ SEGJA ÞETTA GOTT Í BILI.. LIFIÐI HEIL OG SÆL;) ohh man ég ætlaði að skella nokkrum myndum af Mall of America hénna inn til að svekkja ykkur heima sonna smáá..enn nei þá kann ég það ekki:D ahhaha mátti reyna:):D

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 20:13:44 / asta

blee!!

Jæja kominn tími á blogg hjá minni. Það er nú samt bara þannig að maður hefur ekki tíma fyrir eitt eða neitt þessa dagana maður er soldið mikið að vinna.. alltof langt síðan jeg hef heyrt í ykkur stelpur mínar.. !! Annars er jeg bara að vinna og vinna, á golfvellinum, dominos og subway...

 

 

 

En annars þá er voða lítið að frétta af mér nema EITT jeiii!! Það er staðfest að jeg og sara erum að fara út í enskuskóla til englands 28 júlí.. aaaaa mig hlakkar óendanlega mikið til. Þetta verður BARA geðveikt!

 

Fyrir c.a. ári vorum við einmitt saman á lanzarote og það var bara snilld :) vonandi verður þetta það líka ;) get ekki beðið !!

Annars hef jeg bara ekkert að seigja, bara vona að það fari að hætta að rigna!! 

 

Yfir og út

-ásta í sumarfíling-

picture 1

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 18:41:56 / anna

Notting hill

aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa :D Ég er alveg í skíjunum immit núna ,. Ég var að horfa á bestu og sætustu mynd í heimi rétt áðan --> Notting Hill :) . Váá hún er svo frábær! Ég fór bara að hágráta í endan þegar hún var búin .. Hún endaði svo sæt  eitthvað :$ æjj guð ég vildi að það væri til framhald af þessari geðveiku mynd. Ég ætla svo að fara strax á morgun í bæinn til að kaupa hana á DVD.

En nóg um Notting hill, gæti talað um hana í allan dag eeeen já það er víst Mánudagur í dag wonderful :whut: Ég er búin að liggja í leti hérna heima :haha: tíhí ! var í fríi í vinnunni svo ég ákvað bara að sofa lengi og vera bara in my swetpants og horfa á kósýmynd:D Er alvarlega að pæla í að horfa á pretty woman. Hvað get ég sagt. Julia Roberts er bara besta og flottasta leikkona í heimi. Minnir mig á það afhverju mér langar til að vera leikkona.

Þá er ég farinn að halda áfram í þessu svaðalega chilli. Hver veit nema ég skelli annari Julia Roberts mynd í tækið :D
Adios amigo

       

    FARIÐ ÖLL OG LEIGIÐ YKKUR NOTTING HILL.. NÚÚÚNA!
FARIÐ SVO Í KÓSY SWETPANTS:D
ÞÁ ERUÐI SKO KOMIN Í STUÐ FYRIR NOTTINH HILL  


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 20:02:23 / solveig

sjering an ameisíng vídjó!!

http://b2.is/?sida=tengill&id=174109

Hæhæ! Ég vildi bara deila þessu einstaklega skemmtilega myndbandi með ykkur, þetta er gífurlega nýtískulegt og skemmtilegt, og þetta kemur alla leið frá Finnlandi, einmitt þar sem að ég er að fara á FIMMTUDAGINN :D úff, hlakka til.

Það er sko eins gott að þið kveðjið mig.

Annars var ég að gera svona nýtt "um mig" endilega kíkið á það, vonandi lýst ykkur á..

En ég er farin að horfa á Melrose Place, og hlusta á The Knife!


The image “http://img.mtv3.fi/mn_kuvat/subtv/ohjelmakortit/ohjelmakortitsyksy2005/339711.jpg” cannot be displayed, because it contains errors. The image “http://damusic.be/images/artikels/knife_mask.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.



 

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 00:11:11 / anna

sláandi tvífarar

Þá er komið að því ! Verð að deila með ykkur mestu tvíförum í heimi sem við Ásta fundum á 17.júní! sko ég og Ásta vorum eitthvað að rölta þegar við fundum 2 tvíbura sem heita Brynjar og Davíð. ALLAVEGA! þeir eru bara alveg eins og Arnar Hólm :o Það voru bara allir í  sjokki þegar þau sáu strákana:| en hérna koma mynidr af gæjunum -->



Hérna eru tvíburnarnir tveir og hmm veit ekki afhverju ég er inná báðum myndum hehe :D 

EN ÉG FINN ENGA NÝJA MYND AF ARNARI HÓLM! en þið vitið nú öll alveg hvernig kallinn lítur út:D EN ERU ÞEIR EKKI LÍKIR HONUM  ???


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 20:31:45 / solveig

Finnland here I come

Kominn tími á blogg? já ég held það!

Dagarnir eru búnir að vera hinir fínustu núna uppá síðkastið. Er bara að vinna alla daga, sem er allt í lagi. Það var bara ansi rólegt í dag, við vorum bara eitthvað úti með fólkinu og í sólbaði og svona ;) Ekki amalegt það... Svo er ég að fara að vinna á morgun líka (pfff, anna er bara í fríi! huhh, en hún verður að vinna um helgina muhahaha )

Svo skelltum við "ladies" okkur útað borða á Pizza Hut í gær og fengum okkur þennan dýrindis mat ;) Þetta var "jeyviðkomumstinnískóla" fagnaður, og heppnaðist hann mjög vel. Sara dró okkur svo á McDonalds þar sem að við bættum enn á okkur og fengum okkur ís! Sara það er þér að kenna að draumur minn sem módel eyðilegst ;) haha! right.

En fyrir ykkur sem að ekki vitið, þá er ég, Sólveig Birna Júlíusdóttir, að fara til Finnlands næsta fimmtudag. Nánar tiltekið þann 29. júní.
Þið skuluð reyna að sakna mín ekki of mikið, ekki gráta ykkur í svefn á hverju kvöldi...
Ég er annars að fara í ferð með sellóstelpunum og við verðum þarna alveg að brillera að spila fyrir böns af Finnum. Það verður gordjus!

Er farin að horfa á Melrose Place, jájá, ég er kúl ég veit það!

Og já! Hey! eruð þið öll búin að fá svona bréf frá skólunum ykkar? Ég vil mitt :( búhú!

The image “http://www.flaggenkiste.de/images/big/finnland.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.


The image “http://www.helsinki.fi/lehdet/uh/kuvat/199i2.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

girl in  finland -- google


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 22:51:18 / anna

Helgin

Föstudagurinn : Ég, Sara, Sólveig og Ásta vorum heima hjá frænda söru að hjálpa henni að passa:) Þar fóru framm mjög leyndardómsfull samtöl meðan Ásta lá eilega sofandi í stólnum á móti.

17.júní :  Vaknaði snemma til að æfa mig fyrir leikritið sem við krakkarnir í kramhúsinu vorum að fara sýna á lækjartorgi. Svo klukkan 3 sýndum við leikritið og Sólveig og Sara elskurnar mættu til að horfa á mig :D. Leikritið gekk bara mjög vel held ég, en svo þurfti ég að kveðja leiklistar krakkana sem var leiðinlegt :( en ég hitti þau nú vonandi meira í sumar! 
Svo um kvöldið fórum við stelpurnar heim til Söru sætu í hafnarfirðinum og vorum þar eitthvað að gera okkur til. Síðan bara tókum við strætó niðrí bæ og hittum alla krakkana :) hmm jááá! sumir voru vel hressir aðrir ekki , ojj svo var ég svo óheppin að labba á brotna glerflösku og það fossblæddi úr tánni en það varð allt í lagi því að Helgi og Sólveig sætu hjálpuðu mér með það ;) takk fyrir það krakkar. VIÐ HITTUM SVO TVÍFARA ARNAR HÓLMS:D sko ég var í sjokki þeir voru svo líkir ! :o úff , við tókum mynd af stráknum og látum hana vonandi bráðum inná netið . Sólveig fékk hausverk og fór eitthvað aðeins fyrr heim en svo tókum ég, sara og ásta bara taxa heim og gistum heima hjá henni ástu æðibita;)

Sunnudagurinn : mjög myglaður dagur :D en Arnar hólm breyti honum með því að draga mig heim til Gísla til að horfa á Brazilíu leikinn. Eftir það fórum við út í fótbolta með Kristjáni og Eggerti þar sem ég rústaði þeim í HM :D  ójá Gísli ekki reyna að neita því.

Verð bara að enda bloggið með mínum uppáhalds lögum Jeff Buckleys
-Dream Brother
-Mojo Pin
-Morning theft
-What will you Say

 

SÓLVEIG BIRNA JÚLÍUSDÓTTIR !!! ég var að horfa á Wonder Years þátt númer 6-15 !! ER ÞETTA SÍÐASTI ÞÁTTURINN :cry: neeeeeeeeeeeei:cry: það endar ömurlega


» 10 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 17:13:08 / solveig

Me dig Hole! yes I am digging! I dig deep..

Lög mómentsins: I´ll  be seeing you - Billie Holiday
(þetta er aldgamalt lag, en bara sæt!)
KC & the Sunshine band - Get down tonight
(einkenndi 17. júní)
Hairdoctor - Mic check
(af því að þeir eru bara endalaust kúl!)


Helgin er finito!

Og hún var bara hin fínasta...

Föstudagurin var bara rólegur. Við stelpurnar skelltum okkur til Söru sem að var að passa og vorum bara eitthvað að spjalla og haf aþað kósý, en ég fór reyndar að sækja Þórunni og Ladda sem að voru að koma til landsins, útá flugvöll. Alltaf gaman að fá þau aftur heim. Heimilið verður miklu háværara sökum þess að Þórunn og mamma sameinast og eru ekki beint þær lágværustu í heimi.
Svo kemur Sigríður bara á miðvikudaginn.. hlakka mikið til að fá hana :D

Svo var 17. júní í gær, og hann heppnaðist líka bara vel!
Ég fór um daginn að horfa á Önnu leika í leikritinu sínu niðrí bæ, og hún fór alveg á kostum! Ég sé óskarsverðlaunin bara í móðu framundan fyrir hana ;) Þetta var ekkert smá flott hjá henni!
Svo fórum við stelpurnar til Söru bara um kvöldið og svo niðrí bæ þar sem að eiginlega allir krakkarnir voru bara. Þetta var eiginlega bara samansafn af krökkum úr Garðabæ þarna, alltaf gaman að spjalla við fólkið ;) Sumir voru skrautlegir og í gúddý fíling.
Besti 17. júní hingað til ...

En annars eru allir komnir inn í skóla held ég

Ég = MH Ásta = FG Sara = Verzló Anna = MR

Það verður frekar skrítið að vera ekki með þeim í skóla :O Við erum búnar að vera saman í skóla síðan í 1. bekk! úff, og gengið í gegnum skrautlegt og skemmtilegt saman :D En við verðum bara alltaf að hittast eftir skóla, og komum á böllin hjá hvor annarri.
Annars verður fyrsti dagurinn örugglega frekar skrítinn í MH. Skrítið að vera ekki með stelpunum...
Þeir sem að eru að fara í MH sem að ég veit um eru
-Rebekka
-Sigga Hulda
-Jón Páll
-Kristín
-Guðjón
-Guðjón Eggert (kannski)

og svo bara veit ég ekki um neina fleiri :| eða man allavegana ekki eftir þeim í augnablikinu.. endilega kommentið ef að þið vitið um fleiri!

En þetta er nóg. Ég er búin að bulla alltof mikið hérna.

Ég kveð -- Sólveig

Ps. Hvernig finnst ykkur svo
þessi æðislega skoðanakönnun;) ?


_dsc5416.jpg
Þórunn, Sigríður, ég og mamma

_dsc5410.jpg
Þórunn, Sigríður og ég

_dsc5589.jpg
bara svona rétta að sýna ykkur famelíuna ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 11:27:25 / solveig

Rósa afmælisbarn!

Hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag!
Hún á Afmæli hún RÓSA!
Hún á afmæli í dag :D:D





Til hamingju með afmælið sæta ;) !
Orðin 16 ára finally .. sweet sixteen!
Sjáum þig í kvöld! ;)

The image “http://www.nattyminx.com/blog/files/birthdaycupcake.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
 

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 19:33:20 / solveig

Gleði Gleði!

Vei Vei Vei!
Ég komst inn í MH!


The image “http://web.syr.edu/~cjbryzgo/monkey%20smile.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
 

» 13 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 15:09:47 / anna

...

Lög Dagsins : Mew - the zookeeper's boy
Placebo - Meds
dEUS - what we talk about
prodigy - out of space ( hehe good old times )

  Electronics

aaaah alltof langt síðan ég hef bloggað, kann ekkki einu sinni að blogga lengur  8| verð að fara bæta mig í þessu stelpur.  En síðustu dagar eru búnir að vera frekar busy , ég og Sólveig alltaf vinnandi á Hrafnistu , sem er nú bara gaman hehe helling af skemmtilegum stelpum þarna ;)  og svo er líka búið að vera mikið að gera í leiklistinni ..  en 17.Júní næstu helgi :D:D wúhú ! Ætla ekki allir út í bæ um kvöldið ??

Svo er þetta Flass ball á morgun ! Ég kemst því miður ekki :S Langar reyndar heldur ekkert spes á það , nema jú Dr.Mister and Mr. Handsome verða að spila , Held að öllum langi til að sjá þá ! 

 Á FÖSTUDAGINN ER SVO AÐAL LEIKURINN !!! STJARNAN vs. VALUR... sem þýðir ---> Tommi boy á móti strákunum í stjörnunni :D Ég mæti , nema verð bara svona hlutlaus áhorfandi .

Over & Out Anna ;)


» 14 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 20:45:45 / solveig

HaHa!

Hahahaha!
Þetta bjargaði deginum...

http://flass.net/fullfrettir.php?id=882&p=1



The image “http://www.taosnews.com/bestoftaos/images/editorial/thumb.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
 

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 01:28:50 / asta

Daddaraa.. get ekki sofnað..................?!

35478.gif 25858.gif 21583.gif 20743.gif

Jæja ætla skella smá helgarbloggi..

Föstudagur: var að vinna á dominos til 10 og þá skellti jeg mér til söru, afþví jeg var nú stödd í hafnarfirði ;) og gisti hjá henni.

Laugardagur: Vaknaði við að sara fór á æfingu um 10 og svo komhún heim og svona.. og við fórum útá nes til mín. Horfðum á The O.C. loksins loksin höfum ekki haf tíma fyrir þetta og vorum komin á þátt 19 og serían er löngu búin.. öshösh.. en svo fórum við í pizza party til önnu og co. :D svo tókum við some-ladys businn útí Garðabæ, hittum tinnu sætu og fórum til ingus pingus, og þar voru helling af gellum ásamt Rabba og við kíktum til Kobba og það var alveg fínt. Svo fórum við ”some-ladys” til önnu og gistum þar. Svaf mjög vel, ekki í klessu og það var ekki alltaf verið að taka sængina mína :D hehe neinei þið eruð ágætar ;)

Sunnudagur: vaknaði eftir góðan svefn :D svo fór anna á leiklistar æfingu, sobba heim og jeg og sara til mín að horfa á OC náttla.. þetta er allt að koma hjá okkur :D en svo fór jeg í amli hjá litla frænda mínum og svo að vinna á dominos. Og eftir það splæsti brósi burger frá american style og kjélluna :D og svo er jeg bara búin að vera gera ekkert og jeg er klikkað þreytt EN get ekki sofnað :( svo jeg bara hmm afhverju ekki að blogga ?!

 

 



En hvar er annars SUMAR veðrið mitt ?!?!?!?! á maður ekkert að fá neitt tan í sumar eða hvernig er þetta !!

z61821414jj.gif

en góða nótt ástirnar og dreymi ykkur vel :*

-ásta lady-


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 17:00:31 / asta

Garðaskóli búinn :(

já Garðaskóli búin! frekar skrítið að hugsa til þess að við förum flest e-ð annað og ekki í næsta bekk í Garðaskóla.! en vonandi tekur bara e-ð betra við ;) jeg ætla að setja inn nokkrar myndir frá 10.bekk í Garðaskóla :D good times!!

Opnunarballið 092.jpg  Opnunarballið 112.jpg  Opnunarballið 043.jpg

80's Ballið 012.jpg  80's Ballið 023.jpg  80's Ballið 036.jpg

80's Ballið 046.jpg  80's Ballið 063.jpg  80's Ballið 104.jpg

Stíll 2005 015.jpg  Stíll 2005 056.jpg  Stíll 2005 049.jpg

Gagn&Gaman 023.jpg  Gagn&Gaman 032.jpg  Gagn&Gaman 034.jpg

picture 021.jpg picture 035.jpg picture 044.jpg

IMG_8165.JPG IMG_8123.JPG IMG_8137.JPG

IMG_8360.JPG IMG_8424.JPG IMG_8457.JPG

picture 097.jpg picture 102.jpg picture 112.jpg

picture 212.jpg picture 145.jpg picture 194.jpg

picture 007.jpg picture 010.jpg picture 020.jpg

picture 030.jpg picture 033.jpg picture 062.jpg

þórsmörk 015.jpg þórsmörk 021.jpg þórsmörk 043.jpg

þórsmörk 066.jpg þórsmörk 088.jpg þórsmörk 127.jpg 

lokaballið 065.jpg lokaballið 043.jpg lokaballið 080.jpg

váá jeg gæti sett endalaust meira! þetta var bara geggjaður 10 bekkur :)

en í hvaða skóla ætliði svo ?


» 20 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 01:55:10 / solveig

AAAHHHHH!!!!!! wanna kill self...


The image “http://www.fjolskylda.is/media/jpg/medium/hrafnista.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Já! Það er búið að sannast. Ég er óttalegur auli!!
Við í íslenskunni vorum búin að gera bestu stuttmynd í heimi!! og vorum alveg til búin að sýna hana áðan fyrir alla krakkana. En þá þurfti ég að sýna snilldarbrögð og labba á einhverja asnalega snúru sem að var bara fyrir, og allt fór í hakk :cry: myndinn hvarf og allir leiðir.. en svo fann ég hana aftur... en nei! hún hvarf svo aftur. Þetta er eitthvað svona týbískt sem að kemur fyrir okkur!
En við sýndum nú samt krökkunum einhver asnaleg klipp, og fengum smá samúðarhlátur... En þið skuluð sko vita að ef að krakkarnir hefðu fengið að lýta augum á myndina eins og hún var, þá hefðu sko allmargir fengið krampa af hlátri og aðdáun yfir því hversu einkar góð þessi mynd var!
Við vorum búin að eyða frekar löngum tíma í að gera þetta, svo endar það bara svona...
Við ætlum nú samt að gera gott úr þessu, hittast aftur og klára þetta, og svo hóa alla saman og sýna krökkunum þessa æðislegu mynd. Hennar á pottþétt eftir að vera minnst sem besta stuttmynd allra tíma, og það verður munað eftir okkur sem krökkunum sem að breyttu heimi bíómynda. Þetta var æði, og verður það...

Annars var útskriftin í skólanum áðan :( Ég er alveg frekar leið yfir því að vera að hætta, er eiginlega ekki búin að fatta það ennþá... En það voru allskonar ræður haldnar ( Þar sem að Sigga og Egill stóðu sig með prýði, enda í stuttmyndahópnum okkar ;) jú gó gæs ) Og svo var verðlaunaafhending, og að lokum einkunnirnar. Og ég er bara mjög ánægð með mínar.. vona bara að þær komi mér inn í MH. let´s pray for that!

Svo er fyrsti vinnudagurinn á morgun. Ég mun lífga Hrafnistu upp með skemmtilegum þrífi-töktum mínum, og þakið mun rifna upp af fagnaðarlátum!
Hrafnista beware...here I come...

The image “http://www.jhu.edu/~allnight/stoner%20sad.JPG” cannot be displayed, because it contains errors.
 

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21